ÍR lagði Keflavík í Skógarseli í kvöld í 12. umferð Bónus deildar karla, 89-86.
Keflvíkingar eftir leikinn í 4. sæti deildarinnar með 16 stig á meðan ÍR er í 6.-8. sætinu með 10 stig líkt og KR og Álftanes.
Stóra saga leiksins fyrir Keflavík kannski sú að þeir létu bandarískan leikmann sinn Darrell Morsell fara á dögunum í stað hins knáa Remy Martin. Remy þó ekki kominn í leikmannahóp Keflavíkur fyrir leik kvöldsins, en samkvæmt heimildum Körfunnar bindur félagið vonir um að hann verði aftur kominn í lið þeirra á næstu dögum.
Leikar standa nokkuð jafnir í fyrsta leikhlutanum þó oftar en ekki séu það gestirnir úr Keflavík sem eru skrefinu á undan. Með góðu áhlaupi er það þó ÍR sem leiðir að fyrsta fjórðung loknum, 29-24. Undir lok fyrri hálfleiksins nær ÍR aðeins að bæta við þá forystu þó Keflavík sé aldrei langt undan. Heimamenn 9 stigum yfir þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik, 54-45.
Liðin skiptast á körfum í upphafi seinni hálfleiksins, en þegar líða fer á þriðja ná heimamenn enn betri tökum á leiknum og ná sinni mestu forystu í leiknum, 15 stigum, áður en Keflavík nær að svara og er munurinn enn 9 stig fyrir lokaleikhlutann, 79-70.
Í þeim fjórða gera Keflvíkingar virkilega heiðarlegar tilraunir til þess að vinna leikinn. Vörn ÍR heldur þó nokkuð vel og er forysta þeirra lengst af í kringum fimm stig í lokafjórðungnum. Undir lokin nær Keflavík þó að brjóta múrinn og gefa sjálfum sér tækifæri til þess að jafna leikinn í þrígang í brakinu. Allt kemur þó fyrir ekki og er sigur ÍR að lokum nokkuð verðskuldaður, 89-86.
Stigahæstir heimamanna í leiknum voru Dimitrios Klonaras með 31 stig og Tsotne Tsartsidze með 21 stig.
Fyrir Keflavík var stigahæstur Mirza Bulic með 22 stig og Hilmar Pétursson bætti við 16 stigum.




