spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaÁlftnesingar hófu árið á sigri í Laugardalshöll

Álftnesingar hófu árið á sigri í Laugardalshöll

Álftnesingar lögðu Ármann nokkuð örugglega í 12. umferð Bónus deildar karla í Laugardalshöll í kvöld, 75-110.

Eftir leikinn er Álftanes í 6. sæti deildarinnar með 10 stig á meðan Ármann er í 12. sætinu með 4 stig.

Leikur kvöldsins fór heldur hægt af stað og lítið var um körfur í fyrsta leikhlutanum. Að honum loknum voru það þó gestirnir af Álftanesi sem náð höfðu yfirhöndinni, 13-18. Undir lok fyrri hálfleiksins náðu gestirnir svo að láta kné fylgja kviði og er Álftanes 14 stigum yfir þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik.

Ármenningar gera ágætlega að halda sér inni í leiknum í upphafi seinni hálfleiks, en undir lok þess þriðja er eins og sú orka hjá þeim klárist. Álftnesingar ganga á lagið og nánast klára leikinn undir lok fjórðungsins, munurinn 18 stig fyrir lokaleikhlutann. Í honum gerði Álftanes svo nóg til að vinna að lokum gífurlega örugglega 75-110.

Stigahæstir fyrir Ármanní leiknum voru Daniel Love með 20 stig og Bragi Guðmundsson með 16 stig.

Fyrir Álftanes var stigahæstur Ade Murkey með 24 stig og David Okeke bætti við 23 stigum.

Tölfræði leiks

Ármann: Daniel Love 20/5 fráköst/6 stolnir, Bragi Guðmundsson 16/4 fráköst, Arnaldur Grímsson 13, Vonterius Montreal Woolbright 9/4 fráköst/5 stoðsendingar, Kári Kaldal 6, Marek Dolezaj 6/5 fráköst, Alfonso Birgir Gomez Söruson 3, Zarko Jukic 2/7 fráköst, Jóel Fannar Jónsson 0, Ingvi Þór Guðmundsson 0, Jakob Leifur Kristbjarnarson 0, Valur Kári Eiðsson 0.


Álftanes: Ade Taqqiyy Henry Murkey 24/10 fráköst, David Okeke 23/12 fráköst, Dúi Þór Jónsson 19/12 stoðsendingar, Sigurður Pétursson 10, Haukur Helgi Briem Pálsson 10, Rati Andronikashvili 9/6 fráköst/7 stoðsendingar, Hilmir Arnarson 8, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 5/5 fráköst, Colin Júlíus Lewis 2, Duncan Tindur Guðnason 0, Ingimundur Orri Jóhannsson 0, Almar Orn Bjornsson 0/4 fráköst.

Fréttir
- Auglýsing -