spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaBandaríkjamaður í Blómabæinn

Bandaríkjamaður í Blómabæinn

Hamar hefur samið við Isaiah Wade um að leika með liðinu á yfirstandandi leiktíð í fyrstu deild karla.

Wade er 27 ára framherji og kemur frá Oklahoma. Hann hefur áður spilað með Denver Nuggets í NBA G-league, Macau Blackbears og Potawatomi Fire.

Daði Berg þjálfari liðsins segist spenntur að fá Wade í hópinn. ,,Isaiah er spennandi leikmaður sem mun styrkja okkur í baráttunni sem framundan er . Hann býr yfir eiginleikum sem hafa vantað í okkar leik og ég hef mikla trú á að hans karakter falli vel inn í okkar hóp” Sjálfur segist Isaiah í tilkynningu með félagaskiptunum spenntur fyrir því að fá tækifæri til þess að spila á Íslandi. Hann hlakkar til tímabilsins og segir gaman að fá tækifæri til þess að nýta krafta sína til þess að styrkja liðið.

Fréttir
- Auglýsing -