spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaLutu í lægra haldi í höfuðborginni

Lutu í lægra haldi í höfuðborginni

Styrmir Snær Þrastarson og Zamora máttu þola tap gegn Estudiantes í Madríd í Primera FEB deildinni á Spáni í dag, 86-77.

Á 22 mínútum skilaði Styrmir Snær 11 stigum, 2 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta.

Zamora eru eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með sex sigra og átta töp það sem af er deildarkeppni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -