Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Bilbao létu í minni pokann gegn Breogan í ACB deildinni á Spáni, 100-99.
Á rúmum 27 mínútum spiluðum í leiknum var Tryggvi með 10 stig, 9 fráköst, 3 stoðsendingar og 3 varin skot.
Bilbao eru eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með fimm sigra og sex töp það sem af er deildarkeppni.



