Fimm leikir fara fram í fyrstu deild karla í kvöld.
Blikar taka á móti Hamri í Smáranum, Haukar fá Hött í heimsókn í Ólafssal, KV og Skallagrímur mætast á Meistaravöllum, Sindri fær Selfoss í heimsókn á Höfn og í Höllinni á Akureyri eigast við heimamenn í Þór og Fylkir.
Leikir dagsins
Fyrsta deild karla
Breiðablik Hamar – kl. 19:15
Haukar Höttur – kl. 19:15
KV Skallagrímur – kl. 19:15
Sindri Selfoss – kl. 19:15
Þór Akureyri Fylkir – kl. 19:15



