Ísland mátti þola tap í gær í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2027, 84-96.
Fyrsta leik undankeppninnar vann íslenska liðið sterkt lið Ítalíu úti í Tortona síðasta miðvikudag.
Að öðrum ólöstuðum var leikmaður Íslands Tryggvi Snær Hlinason besti leikmaður vallarins í leiknum með 17 stig, 7 fráköst og 3 varin skot.
Sú frammistaða hefur verið útnefnd ein af fimm bestu frá fyrsta leikdegi mótsins, en hérna er hægt að kjósa hana sem þá bestu.




