Lykilleikmaður sjöttu umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Njarðvíkur Paulina Hersler.
Í gífurlega sterkum sigri Njarðvíkur gegn Keflavík í Blue höllinni var Paulina besti leikmaður vallarins. Á tæpum 38 mínútum spiluðum skilaði hún 26 stigum, 8 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hún gífurlega skilvirk í leiknum, með 100% heildarskotnýtingu, 7 fiskaðar villur og 35 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
- umferð – Þóranna Kika Hodge Carr / Valur
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Shaiquel Mcgruder / Stjarnan
- umferð – Paulina Hersler / Njarðvík



