Elvar Már Friðriksson og Anwil Włocławek máttu þola tveggja stiga tap gegn King Szczecin í pólsku úrvalsdeildinni, 92-94.
Á rúmum 27 mínútum spiluðum skilaði Elvar Már 12 stigum, frákasti og 6 stoðsendingum.
Elvar Már og félagar eru í 6.-11. sæti deildarinnar eftir leik dagsins með tvo sigra og tvö töp.



