Lykilleikmaður fjórðu umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður KR Rebekka Rut Steingrímsdóttir.
Í gífurlega sterkum sigri nýliða KR gegn toppliði Njarðvíkur á Meistaravöllum var Rebekka besti leikmaður vallarins. Á tæpum 36 mínútum spiluðum skilaði hún 19 stigum, 6 fráköstum, 10 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum með aðeins tvo tapaða bolta, sex fiskaðar villur og 28 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
- umferð – Þóranna Kika Hodge Carr / Valur
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR



