Lykilleikmaður 3. umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Vals Þóranna Kika Hodge-Carr.
Í nokkuð sterkum sigri Vals gegn liði Hamars/Þórs í Hveragerði var Þóranna besti leikmaður vallarins. Á tæpum 32 mínútum spiluðum skilaði hún 23 stigum, 9 fráköstum, 4 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og vörðu skoti. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum með 71% skotnýtingu og 31 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík
- umferð – Þóranna Kika Hodge Carr



