Lykilleikmaður 2. umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur Thelma Dís Ágústsdóttir.
Í nokkuð góðum fyrsta sigri Keflavíkur á tímabilinu gegn Hamri/Þór í Blue höllinni var Thelma Dís besti leikmaður vallarins. Á tæpum 32 mínútum spiluðum skilaði hún 29 stigum, 6 fráköstum, 3 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var hún gífurlega skilvirk í leiknum, 7 af 11 fyrir utan þriggja stiga línuna, með 71% heildarskotnýtingu, enga tapaða bolta og 37 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:
- umferð – Rebekka Rut Steingrímsdóttir / KR
- umferð – Thelma Dís Ágústsdóttir / Keflavík



