spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Þetta er pólska liðið sem Ísland mætir í dag

Þetta er pólska liðið sem Ísland mætir í dag

Ísland og Pólland mætast kl. 18:30 að íslenskum tíma í þriðja leik liðanna á EuroBasket 2025.

Um er að ræða nokkuð sterkan pólskan hóp sem mættur er til leiks í Katowice, en hann samanstendur af Aleksander Balcerowski, Aleksander Dziewa, Tomasz Gielo, Kamil Laczynski, Jordan Loyd, Michal Michalak, Dominik Olejniczak, Andrzej Pluta, Mateusz Ponitka, Michal Sokolowski, Szymon Zapala, Przemyslaw Zolnierewicz.

Helmingur þessa hóps leikur í heimalandinu Póllandi fyrir sterk lið þar, sem sum taka einnig þátt í Evrópukeppnum. Einn af þeim verandi Michal Michalak sem á næsta tímabili verður liðsfélagi Elvars Más Friðrikssonar hjá Anwil Wloclawek í Póllandi.

Þeir sem leika ekki í Póllandi eru sex og dreifast þeir nokkuð vel. Tveir leika á Ítalíu, einn í Tyrklandi, einn í Frakklandi og tveir á Spáni, að sjálfsögðu í efstu deildum þar. Annar þeirra er leikur á Spáni var liðsfélagi Tryggva Snæs Hlinasonar hjá Evrópumeisturum Bilbao, Tomas Gielo, en hann hefur reyndar samið við lið í Póllandi fyrir næsta tímabil.

Lykilleikmaður Pólska liðsins síðustu ár er hinn 32 ára Mateusz Ponitka sem á að baki gífurlega farsælan feril í bestu landsdeildum Evrópu og EuroLeague, en hann leikur nú fyrir Bahçeşehir Koleji í Tyrklandi og FIBA Europe Cup. Hann er á leiðinni á sitt fimmta Evrópumót með liðinu. Líklega hans besta frammistaða á síðasta EuroBasket, þegar hann og pólska liðið slógu út Slóveníu í átta liða úrslitum og hann skilaði 26 stigum, 16 fráköstum og 10 stoðsendingum í leiknum.

Stóru fréttirnar varðandi pólska hópinn síðustu daga og vikur hafa verið þær að leikmaður þeirra og San Antonio Spurs í NBA deildinni Jeremy Sochan meiddist og verður því ekki með liðinu á mótinu. Þungt högg fyrir pólska hópinn, en samband þeirra deyr ekki ráðalaust. Fengu til sín bandarískan bakvörð sem leikur fyrir Mónakó í Frakklandi og EuroLeague, Jordan Loyd, létu hann hafa pólskan ríkisborgararétt og hefur hann verið mikilvægur liðinu í þessum fyrstu leikjum lokakeppninnar.

Það sem af er móti hefur þetta pólska lið gert ansi vel. Unnið sterka andstæðinga, Slóveníu í fyrsta leik og svo lögðu þeir lið Ísrael í gær með sigurkörfu Jordan Loyd.

Fréttir
- Auglýsing -