Ísland hóf leik á lokamóti EuroBasket í gær með leik gegn Ísrael í Katowice í Póllandi. Þrátt fyrir góða frammistöðu framan af leik náði íslenska liðið ekki í sigur, en þeir voru lengst af á milli 10 og 15 stiga undir í seinni hálfleiknum.
Það er stutt á milli á móti sem þessu. Í dag fengu öll liðin í Katowice frídag áður en þau leika svo næst á morgun, en þá mun Ísland mæta Belgíu kl. 12:00 að íslenskum tíma.
Karfan kom við á blaðamannafundi í dag og ræddi við Orra Gunnarsson um þennan fyrsta leik hans á stórmóti, hvernig það er að eiga við stjörnur eins og Deni Avdija og leik morgundagsins gegn Belgíu.



