spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Elvar Már er ánægður með stuðninginn sem hann og liðið fær í...

Elvar Már er ánægður með stuðninginn sem hann og liðið fær í Katowice ,,Það eru fáir í Njarðvíkunum núna”

Ísland hóf leik á lokamóti EuroBasket í gær með leik gegn Ísrael í Katowice í Póllandi. Þrátt fyrir góða frammistöðu framan af leik náði íslenska liðið ekki í sigur, en þeir voru lengst af á milli 10 og 15 stiga undir í seinni hálfleiknum.

Það er stutt á milli á móti sem þessu. Í dag fengu öll liðin í Katowice frídag áður en þau leika svo næst á morgun, en þá mun Ísland mæta Belgíu kl. 12:00 að íslenskum tíma.

Karfan kom við á blaðamannafundi í dag og ræddi við Elvar Már Friðriksson um leik gærdagsins, möguleika Íslands gegn Belgíu á morgun og þann gríðarlega fjölda íslenskra stuðningsmanna sem mættir eru til Katowice til að styðja liðið.

Fréttir
- Auglýsing -