spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Þetta er belgíski hópurinn sem Ísland mætir í dag

Þetta er belgíski hópurinn sem Ísland mætir í dag

Ísland leikur í dag sinn annan leik lokamóti EuroBasket 2025 gegn Belgíu kl. 12:00.

Síðasta liðið í riðil Íslands á EuroBasket til þess að staðfesta 12 leikmanna hóp sinn var Belgía, en hann skipa Ismael Bako, Mamadou Guisse, Manu Lecomte, Siebe Ledegen, Joppe Mennes, Jean-Marc Mwema, Loic Schwartz, Godwin Tshimanga, Kevin Tumba, Niels Van Den Eynde, Andy Van Vliet og Hans Vanwijn.

Lykilleikmaður í belgíska liðinu er miðherjinn Ismael Bako, en hann leikur fyrir Paris Basketball í Frakklandi og í EuroLeague. Ismael er 30 ára gamall og að fara á sitt þriðja lokamót EuroBasket með liðinu.

Í stóru tapi þeirra gegn Frakklandi nú á fimmtudag var Ismael einn besti leikmaður belgíska liðsins með 11 stig og 7 fráköst, en þá var Hans Vanwijn leikmaður Merkezefendi Belediyesi Denizli í Tyrklandi einnig góður fyrir þá með 13 stig.

Fimm leikmanna liðsins leika svo í sterkari liðum BNXT deildarinnar í Belgíu/Hollandi og hinir dreifast á efstu deild í Frakklandi, Tyrklandi, Póllandi, Þýskalandi og aðra deildina á Spáni.

Belgía gerði nokkuð vel í undankeppni mótsins, lögðu Slóvakíu í tvígang og sterkt lið Spánar á sínum heimavelli í Belgíu. Þeirra besti leikmaður í þeirri undankeppni Retin Obasohan leikmaður Manresa í ACB deildinni verður ekki með liðinu á lokamótinu, en hann þurfti að draga sig út úr hópnum eftir að hafa meiðst í undirbúningi belgíska liðsins.

Belgía er að leika á EuroBasket í 19. skiptið. Þeir hafa þó aldrei náð að vinna til verðlauna á mótinu. Besti árangur þeirra var árið 1947 þegar þeir enduðu í fjórða sæti. Þeim hefur þó gengið ágætlega á síðustu mótum, þannig séð, komast í 16 liða úrslit 2015 og á síðasta móti árið 2022.

Fréttir
- Auglýsing -