Undir 16 ára stúlknalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Istanbúl í Tyrklandi.
Þessa dagana leika stúlkurnar í umspili um 9 til 16 sæti mótsins. Eftir tvo góða sigra í umspilinu er komið að lokaleik liðsins á mótinu gegn Grikklandi kl. 16:30 að íslenskum tíma. Fari svo Ísland vinni munu þær enda í 9. sæti mótsins, en ef þær tapa þá er 10. sætið niðurstaða Evrópumóts þessa árs.
Hér verður hægt að fylgjast með beinu vefstreymi frá leiknum



