Ísland hefur leik í dag á lokamóti EuroBasket 2025 með leik gegn Ísrael kl. 12:00 að íslenskum tíma.
Eftir leik dagsins er leikið ansi þétt. Leikur á laugardag gegn Belgíu, gegn heimamönnum í Póllandi á sunnudag, Slóveníu á þriðjudag og riðlakeppnin endar svo með leik gegn Frakklandi á fimmtudag í næstu viku.
Riðill Íslands er leikinn í Katowice í Póllandi. Í honum eru sex lið og komast fjögur efstu liðin áfram í sextán liða úrslit sem leikin verða í höfuðborg Lettlands, Riga.
Leikur dagsins verður í beinni útsendingu á RÚV og hægt verður að fylgja fréttum af honum og mótinu hér.
Leikur dagsins
EuroBasket 2025
Ísland Ísrael – kl. 12:00
Bein útsending á RÚV



