Ísland hefur leik á lokamóti EuroBasket 2025 komandi fimmtudag 28. ágúst í Katowice í Póllandi.
Karfan kom við á opnum blaðamannafundi liðsins í dag og ræddi við Craig Pedersen þjálfara liðsins um aðstæður liðsins í Katowice, hvernig undirbúningurinn gengur og mikilvægi þess fyrir hópinn að fá Hauk Helga Pálsson til móts við liðið þó hann sé ekki að fara að spila, en hann á að koma til Póllands á föstudag.



