spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Mæta Litháen í lokaæfingaleik fyrir EuroBasket kl. 16:30 í beinni útsendingu RÚV

Mæta Litháen í lokaæfingaleik fyrir EuroBasket kl. 16:30 í beinni útsendingu RÚV

Íslenska landsliðið er á lokametrum í undirbúningi sínum fyrir lokamót EuroBasket sem rúllar af stað nú í lok mánaðar.

Liðið hélt af landi brott í gær til Litháen, þar sem þeir munu mæta heimamönnum í dag. Þaðan mun liðið svo ferðast til Katowice í Póllandi þar sem lokamót EuroBasket mun fara fram.

Útsending frá leik Íslands gegn Litháen hefst kl. 16:25 að íslenskum tíma í dag, en leikurinn fer fram í Alytus Arena í borginni Alytus skammt frá höfuðborginni Vilníus.

Leikur dagsins

Æfingaleikur EuroBasket 2025

Litháen Ísland – kl. 16:30

Í beinni útsendingu RÚV

Fréttir
- Auglýsing -