Út er kominn fyrsti þáttur af Run and gun í stjórn þjálfarans og fjölmiðlamannsins Máté Dalmay.
Þátturinn mun koma út jafnt og þétt fram að móti og alla miðvikudaga tímabilið 25/26.
Í fyrsta þættinum er upphitun fyrir fyrstu deild karla, en Máté til halds og trausts í honum eru Ísak Wíum og Tómas Steindórsson.
Þátturinn er aðgengilegur á Spotify hér, sem og á YouTube hér fyrir neðan.



