spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Tryggvi stigahæstur í fjögurra stiga ósigri gegn heimamönnum

Tryggvi stigahæstur í fjögurra stiga ósigri gegn heimamönnum

Íslenska landsliðið heldur undirbúningi sínum áfram fyrir lokamót EuroBasket sem fer af stað í lok mánaðar.

Í kvöld mátti liðið þola ósigur gegn heimamönnum í Portúgal í æfingaleik, 83-79. Líkt og tölurnar gefa til kynna var leikurinn nokkuð spennandi undir lokin, en Ísland var með forystuna dágóðan tíma í honum. Á lokasekúndunum fékk Ísland nokkur tækifæri til þess að taka forystuna, en allt kom fyrir ekki.

Stigahæstur fyrir Ísland í leiknum var Tryggvi Snær Hlinason með 16 stig. Þá skilaði Martin Hermannsson 13 stigum, Orri Gunnarsson 12 stigum og Elvar Már Friðriksson og Jón Axel Guðmundsson 8 stigum hvor.

Hér má sjá það helsta úr leiknum

Í heild hefur Ísland leikið fjóra æfingaleiki fyrir lokamótið og náð í sigur í einum þeirra gegn Svíþjóð í gær. Lokaæfingaleikur þeirra fyrir mótið er gegn sterku liði Litháen í Alytus þann 23. ágúst.

Fréttir
- Auglýsing -