A landslið karla mun nú í lok ágúst taka þátt í lokamóti EuroBasket 2025. Riðill Íslands er spilaður í Katowice í Póllandi, en ásamt Íslandi eru í honum Pólland, Slóvenía, Frakkland, Ísrael og Belgíga.
Karfan kom við á æfingu liðsins á Álftanesi í dag og ræddi við Tryggva Snæ Hlinason um æfingaleikina úti á Ítalíu, næstu æfingaleiki úti í Portúgal, nýja leikmenn í hóp Íslands og hvernig undirbúningurinn gangi fyrir EuroBasket.



