Jason Gigliotti hefur skrifað undir samning við Sindra fyrir næsta tímabil. Staðfestir félagið þetta á samfélgasmiðlum nú í kvöld.
Jason er 203 cm bandarísk-ungverskur framherji sem kemur til Sindra frá KR, en hann hefur ásamt þeim einnig leikið fyrir Þór Akureyri og Grindavík síðan hann kom til Íslands.



