spot_img
HomeFréttirArnar, Arvydas og Bjarni voru í æfingabúðum fyrir dómara á Norðurlandamótinu í...

Arnar, Arvydas og Bjarni voru í æfingabúðum fyrir dómara á Norðurlandamótinu í Kisakallio ,,Lærum mikið á því að dæma með öðrum dómurum frá öðrum löndum”

Norðurlandamóti undir 16 ára drengja og stúlkna lýkur í dag í Kisakallio í Finnlandi. Margar fréttir síðustu daga á Körfunni hafa eðlilega verið af liðum Íslands sem keppa þar.

Norðurlandamótið er þó ekki einungis tækifæri fyrir yngri leikmenn Íslands til að æfa og keppa saman fyrir Íslands hönd við bestu mögulegu aðstæður, en þangað fara einnig alltaf dómarar frá Íslandi í einskonar æfingabúðir þar sem þeir sjá um dómgæslu á mótinu og eru daginn út og inn að fara yfir frammistöður sínar og hvað mætti betur fara með reynslumiklum leiðbeinendum.

Þetta árið fóru þrír dómarar frá Ísland. Karfan spjallaði við þá Bjarna Rúnar Lárusson, Arnar Þór Þrastarson og Arvydas Kripas um mikilvægi þess að fara í svona æfingabúðir, muninn á dómgæslu á Íslandi og á meginlandinu og aðstæður í Kisakallio þetta árið.

Fréttir
- Auglýsing -