Ísland mun nú í haust taka þátt í lokamóti EuroBasket 2025, en riðill Ísland mun vera leikinn í Katowice í Póllandi.
Þessa dagana er EuroBasket bikarinn á ferð um Evrópu á „trophy tour“ og stoppar hjá átta þjóðum af þeim tuttugu og fjórum sem komast á mótið. Það er þeim fjórum þjóðum þar sem lokakeppnin fer fram ásamt þeim fjórum svokölluðum samstarfs þjóðum.
Á laugardaginn frá klukkan 14:00 – 15:00 mæta landsliðsmenn í Kringluna með bikarinn þar sem í boði verður að fá árituð plaköt og allskyns körfubolta glaðning frá EuorBasket á meðan birgðir endast. Lukkudýr EuroBasket verður einnig á svæðinu.
Hvetjum fólk til að mæta í Kringluna á laugardaginn kl 14:00, kíkja á bikarinn og lukkudýrið og fá mynd af sér með þeim.



