Stjarnan varð á dögunum Íslandsmeistari í 9. flokki drengja.
Íslandsmeistaratitilinn tryggði Stjarnan sér með sigri gegn Keflavík í einvígi, 2-1.
Stjarnan vann fyrsta leikinn í Umhyggjuhöllini en Keflavík jöfnuðu í leik tvö sem fór fram í Blue-höllinni þannig að blása þurfti til úrslitaleiks. Í honum hafði Stjarnan sigur í spennuleik í Umhyggjuhöllinni, 90-81.
Kormákur Nói Jack var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 25 stigum, 12 fráköstum og 2 stoðsendingum.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af liðinu eftir að titillinn var í höfn.
Mynd / KKÍ



