spot_img
HomeFréttirU18 stúlkna klárt fyrir NM í Svíþjóð - Hefja leik á morgun

U18 stúlkna klárt fyrir NM í Svíþjóð – Hefja leik á morgun

Norðurlandamót undir 18 ára stúlkna fer fram í Södertalje í Svíþjóð næstu daga.

Íslenska liðið hélt af landi brott í morgun til þess að taka þátt í mótinu, en seinna í sumar mun liðið svo einnig fara á Evrópumót.

Fyrsti leikur Íslands er á morgun laugardag kl. 14:15 gegn Eistlandi. Liðið leikur svo á hverjum degi til 19. júní fyrir utan 17. júní þegar þær fá frídag.

Hér fyrir neðan má nálgast hóp Íslands, tímasetningar leikja þeirra og aðgang að vefstreymi.

Leiktímar á íslenskum tíma:

14. júní Ísland-Eistland 14:15

15. júní Ísland-Danmörk 14:15

16. júní Ísland-Svíþjóð 16:30

18. júní Ísland-Finland 16:30

19. júní Ísland-Noregur 09:15

U18 Ísland:

Heiðrún Björg Hlynsdóttir – Stjarnan

Elísabet Ólafsdóttir – Stjarnan

Emma Karólína Snæbjarnardóttir – Þór Ak

Fanney María Freysdóttir – Stjarnan

Hanna Gróa Halldórsdóttir – Keflavík

Hulda María Agnarsdóttir – Njarðvík

Jóhanna Ýr Ágústsdóttir – Hamar/Þór

Kolbrún María Ármannsdóttir – Stjarnan

Arndís Rut Matthíasdóttir – KR

Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR

Sara Björk Logadóttir – Njarðvík

Bára Björk Óladóttir – Stjarnan

Þjálfari: Emil Barja

Aðstoðaþjálfarar: Margrét Ósk Einarsdóttir & Karl Ágúst Hannibalsson

Dómari: Dominik Zielinski

Heimasíða mótsins: Nordic Championship

Hlekkur þar sem er hægt að kaupa streymisáskrift: Start | baskettv.se

Fréttir
- Auglýsing -