Tryggvi Snær Hlinason að Bilbao máttu þola tap gegn Joventut Badalona í ACB deildinni á Spáni, 87-79.
Á tæpum 15 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 4 stigum, 4 fráköstum, stoðsendingu og vörðu skoti.
Tryggvi Snær og félagar eru eftir leikinn í 15. sæti deildarinnar, þremur sigurleikjum fyrir ofan fallsvæði deildarinnar þegar aðeins nokkrar umferðir eru eftir.



