HomeFréttir8 liða úrslit í Euroleague

8 liða úrslit í Euroleague

 Nú er ljóst hvaða lið etja kappi í 8 liða úrslitum Euroleague í ár.  8 liða úrslitin hefjast núna undir lok mánaðarins eða 20. mars.  Liðin sem eigast við eru CSKA Moscow gegn Gescrap BB, Montepaschi Siena gegn Olympiacos, Panathinaikos gegn Maccabi Electra og Barcelona gegn Unics.  
Stórliðið Real Madrid þurfti því að sætta sig við að sitja eftir vegna innbyrgðis viðureigna en bæði Montepaschi Siena og Gescrap BB voru með sama sigurhlutfall og Real Madrid.  
 
Liðin leika núna svokallaða best of five series og það lið sem er fyrr til að vinna þrjá leiki fer áfram.  Fyrstu tveir leikir hverrar seríu fara fram á heimaliði þess liðs sem endaði efst í sínum riðli, næstu tveir hjá andstæðingnum og síðasti leikurinn ef kemur til þess aftur á heimavelli sigurvegara riðilsins.  
 
Fyrir áhugasama þá er hægt að kaupa sér aðgang að leikjunum á www.euroleague.tv 
Fréttir
- Auglýsing -