Verða Haukar Íslandsmeistarar? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 4 lið af 6 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða um 67%. Það er því spurning hvort að lið Hauka fylgji þeirri hefð þetta árið, eða ekki? En liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir með 9 sigurleiki og 1 tap, 2 stigum (1 sigurleik) á undan ríkjandi íslandsmeisturum síðustu tveggja ára, Snæfelli.
2009-2010
Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2010-2011
Efsta lið deildar um jól Hamar
Íslandsmeistarar Keflavík
2011-2012
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Njarðvík
2012-2013
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Keflavík
2013-2014
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2014-2015
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2015-2016
Efsta lið deildar um jól Haukar
Íslandsmeistarar ?