spot_img
HomeFréttir57% líkur að Keflavík verði Íslandsmeistarar

57% líkur að Keflavík verði Íslandsmeistarar

 

Verða Keflavík Íslandsmeistarar? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 4 lið af 7 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða um 57%. Það er því spurning hvort að lið Keflavíkur fylgji þeirri hefð þetta árið, eða ekki? En liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 13 umferðir með 11 sigurleiki og 1 tap, 4 stigum (2 sigurleikjum) á undan ríkjandi íslandsmeisturum síðustu þriggja ára, Snæfelli.

 

Hérna er staðan í deildinni

 

 

 

2009-2010

Efsta lið deildar um jól KR

Íslandsmeistarar KR

 

2010-2011

Efsta lið deildar um jól Hamar  

Íslandsmeistarar Keflavík

 

2011-2012

Efsta lið deildar um jól Keflavík  

Íslandsmeistarar Njarðvík

 

2012-2013

Efsta lið deildar um jól Keflavík  

Íslandsmeistarar Keflavík

 

2013-2014

Efsta lið deildar um jól Snæfell  

Íslandsmeistarar Snæfell

 

2014-2015

Efsta lið deildar um jól Snæfell  

Íslandsmeistarar Snæfell

 

2015-2016

Efsta lið deildar um jól Haukar 

Íslandsmeistarar Snæfell

 

 

2016-2017

Efsta lið deildar um jól Keflavík

Íslandsmeistarar ?

Fréttir
- Auglýsing -