HomeBónus deildinBónus deild karla5 hötuðustu leikmenn Bónus deildar karla

5 hötuðustu leikmenn Bónus deildar karla

Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.

Með Máté í þessum síðasta þætti eru sá raunverulegi Tómas Steindórsson og stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan, en í honum er meðal annars farið yfir sviðið í Bónus deild karla.

Meðal þess sem Run and Gun fer yfir hverjir þeir telji hötuðustu leikmenn Bónus deildar karla af aðdáendum. Þá er átt við leikmenn sem aðdáendur andstæðinga þeirra beri minnsta ást til þegar liðin þeirra leika gegn þeim, en þetta eru oft leikmenn sem gera bókstaflega allt til þess að lið þeirra komist sem lengst og leggja sig alla fram við að ná í sigur.

Í efsta sætinu er Hákon Örn Hjálmarsson leikmaður í ÍR. Fast á hæla hans eru þar svo Halldór Garðar Hermannsson úr Keflavík, DeAndre Kane úr Grindavík, Giannis Agravanis úr Stjörnunni og Jaka Brodnik úr Keflavík.

Umræðuna má nálgast hér fyrir neðan í nýjasta þætti Run & Gun sem og á öllum hlaðvarpsveitum.

Fréttir
- Auglýsing -