spot_img
HomeFréttir43% líkur að Tindastóll verði Íslandsmeistarar

43% líkur að Tindastóll verði Íslandsmeistarar

 

 

Verða Tindastóll Íslandsmeistarar? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er þó mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 3 lið af 7 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða 43%.

 

Það virðist því algjörlega uppi í loftinu hvort að lið Tindastóls nái að tryggja sér þann stóra, eða ekki? Í raun líklegra að þeir geri það ekki, en liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir með 9 sigurleiki og 2 töp, í öðru sæti er Stjarnan (jöfn að stigum) en ríkjandi deildar og Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára, KR, eru í 3. sætinu, sigurleik fyrir aftan.

 

Hérna er staðan í deildinni

 

 

2009-2010

Efsta lið deildar um jól Stjarnan

Íslandsmeistarar Snæfell

 

2010-2011

Efsta lið deildar um jól Snæfell 

Íslandsmeistarar KR

 

2011-2012

Efsta lið deildar um jól Grindavík 

Íslandsmeistarar Grindavík

 

2012-2013

Efsta lið deildar um jól Þór Þorlákshöfn

Íslandsmeistarar Grindavík

 

2013-2014

Efsta lið deildar um jól KR

Íslandsmeistarar KR

 

2014-2015

Efsta lið deildar um jól KR 

Íslandsmeistarar KR

 

2015-2016

Efsta lið deildar um jól Keflavík

Íslandsmeistarar KR

 

 

2016-2017

Efsta lið deildar um jól Tindastóll

Íslandsmeistarar ?

Fréttir
- Auglýsing -