Ríkjandi Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu öruggan 90-62 sigur á Stjörnunni í æfingaleik. Njarðvík leiddi 41-29 í hálfleik og náði mest 30 stiga forskoti í seinni hálfleik.
Mestu munaði um breidd leikmannahópsins og skotnýtingu fyrir utan. Bekkur Njarðvíkur skoraði 48 stig á móti 6 stigum Stjörnunnar og liðið hitti úr 14 þriggja stiga skotum gegn aðeins 3 hjá andstæðingunum.
Brittany Dinkins var stigahæst hjá Njarðvík með 24 stig, Danielle Rodriguez skoraði 14 og Ásta Júlía Grímsdóttir var með 13 stig og 20 fráköst. Í liði Stjörnunnar skoraði Agnes María Svansdóttir 17 stig, Eva Wium 13 og Zay Dyer tók 14 fráköst.





