spot_img
HomeFréttir36 sigrar hjá Golden State

36 sigrar hjá Golden State

Golden State Warriors tóku á móti Miami Heat í NBA deildinni í nótt. Warriors fóru með 103-111 sigur af hólmi þar sem Stephen Curry setti 31 stig, tók 2 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í liði Warriors. Hjá Miami var Dwyane Wade að daðra við þrennuna með 20 stig, 7 fráköst og 11 stoðsendingar. Sigur Warriors var 36. í röðinni hjá þeim á þessari leiktíð.

Þá voru tveir aðrir leikir í NBA deildinni í nótt þar sem San Antonio Spurs burstuðu Brooklyn Nets 106-79 og Washington hafði góðan 114-100 sigur gegn Chicago. 

Ef við lítum á stöðu liðanna í augnablikinu þá yrði úrslitakeppnin skipuð eftirtöldum liðum austan- og vestan megin:

Austrið

Cleveland

Toronto

Chicago

Atlanta

Miami

Indiana

Detroit

Orlando 

Vestrið

Golden State

San Antonio

Oklahoma

LA Clippers

Dallas

Memphis

Houston

Utah 

Heitustu lið deildarinnar

LA Clippers – 9 sigrar í röð

San Antonio – 8 sigrar í röð 

Cleveland – 7 sigrar í röð

Golden State – 7 sigrar í röð

Fréttir
- Auglýsing -