spot_img
HomeFréttir3000 sigrar hjá Boston

3000 sigrar hjá Boston

 
Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Boston komst í ansi merkilegan klúbb er þeir lönduðu sínum þrjúþúsundasta sigri í deildinni. Með sigrinum eru það aðeins Lakers og Boston sem unnið hafa 3000 sigra í NBA.
Boston tók á móti Toronto Raptors og lögðu gesti sína 122-102 þar sem Paul Pierce gerði 20 stig. Hjá Toronto var DeMar DeRozan með 20 stig.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Indiana 87-90 San Antonio
Philadelphia 105-99 Chicago
Washington 97-77 New Jersey
Orlando 110-95 Houston
Memphis 110-99 Utah
Minnesota 98-108 Portland
Milwaukee 95-101 Miami (framlengt)
Phoenix 96-121 New York (Þrenna hjá Raymond Felton 23/10/11)
Golden State 116-98 Cleveland
LA Clippers 101-97 New Orleans
 
Mynd/ 3000 sigrar hjá Boston komnir í hús.
 
Fréttir
- Auglýsing -