HomeFréttir29 árum síðar: Ætlar Hrafn að jafna um Einar Bollason?

29 árum síðar: Ætlar Hrafn að jafna um Einar Bollason?

 
Í gær varð Hrafn Kristjánsson þjálfari karla- og kvennaliðs KR fyrsti þjálfarinn í 29 ár til þess að fara með karla- og kvennalið sama félags í bikarúrslit. Þetta þykir víst engin nýlunda í Vesturbænum því aðeins tvö lið í íslenskum körfuknattleik hafa farið með bæði karla- og kvennalið félagsins í bikarúrslit sama árið með sama þjálfarann en það eru KR og ÍR. KR er svo eina félagið þar sem bæði liðin hafa orðið bikarmeistarar sama árið með sama þjálfarann.
Árið 1977 fór Einar Bollason með bæði KR liðin í bikarúrslit og bæði lið urðu meistarar. Tveimur árum síðar var Paul Stewart með bæði liðin í úrslitum hjá ÍR þar sem kvennaliðið varð meistari og árið 1982 voru KR-ingar aftur á ferðinni þá undir stjórn Stewart Johnsons. Það árið varð kvennaliðið meistari.
 
Núna 29 árum síðar eru KR-ingar aftur komnir með bæði lið félagsins í Höllina og undir stjórn Hrafns Kristjánssonar sem verður þar með aðeins annar íslenksi þjálfarinn til að vera með bæði lið í bikarúrslitum.
 
1977 Einar Bollas með KR karla og kvenna, bæði lið urðu meistarar.
1979 Paul Stewart með ÍR karla og kvenna, stelpur urðu meistarar
1982 Stewart Johnson með KR karla og kvenna, stelpur urðu meistarar
2011 Hrafn Kristjánsson með KR karla og kvenna, ???
 
,,Þetta er fríður hópur en ég var reyndar ekkert búinn að leiða hugann að þessu og maður er bara upp með sér að vera í hópi þessara manna og gaman að það séu KR-ingar í stórum meirihluta,” sagði Hrafn Kristjánsson í samtali við Karfan.is.
 
,,En núna verður maður að taka fókusinn af þessu og halda dampi í deildinni og ná okkar takmörkum þar, við fórum langleiðina út af sporinu fyrir áramót en höfum verið á réttri leið núna eftir áramót,” sagði Hrafn en hvernig bera menn sig eftir annasaman dag eins og í gær?
 
,,Maður er soldið eins og útspýtt hundsskinn og ég hafði nú reyndar ekki dug í mér til að fagna þessu almennilega. Nú er ég staddur heima með 7 ára afmæli í gangi og álagið er svipað og annar leikurinn í gær,” sagði Hrafn léttur í bragði.
 
Fréttir
- Auglýsing -