spot_img
HomeFréttir27 manna æfingahópur landsliðsins - 14 manna hópur klár fyrir leiki gegn...

27 manna æfingahópur landsliðsins – 14 manna hópur klár fyrir leiki gegn Eistlandi – 3 Nýliðar

Íslenska landliðið var kallað saman í síðustu viku og æfði saman um síðustu helgi. Hluti hópsins æfði svo saman í vikunni og um helgina, en nokkrir leikmenn bættust við hópinn síðasta föstudag.

Fjórtán manna hópur hefur svo verið valinn sem fer til tveggja æfingaleikja í Eistlandi nú á miðvikudag 28. og fimmtudag 29. júlí.

Framundan eru svo mjög mikilvægir leikir í ágúst, dagana 12.-17. ágúst, í lokaumferð forkeppni að HM 2023. Þar leikur liðið í sóttvarnar „bubblu“ í Svartfjallalandi alla fjóra leiki sína gegn Svartfjallalandi og Danmörku í þriggja liða riðli. Tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram í sjálfa undankeppnina sem hefst í nóvember.

Allir leikmenn sem fengu boð í æfingahópinn í upphafi voru eftirtaldir:
Bjarni Guðmann Jónsson, Háskóli USA
Dagur Kár Jósson, Grindavík
Davíð Arnar Ágústsson, Þór Þ.
Elvar Már Friðriksson, Telnet Giants Antwerp, Belgía
Gunnar Ólafsson, Stjarnan
Hákon Örn Hjálmarsson, USA
Halldór Garðar Hermannsson, Þór Þ.
Haukur Helgi Pálsson Briem, Morabanc Andorra, Spánn
Hilmar Pétursson, Haukar
Hilmar Smári Henningsson, Stjarnan
Hjálmar Stefánsson, Valur
Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík
Jón Axel Guðmundsson, Fraport Skyliners, Þýskaland
Kári Jónsson, Basket Girona, Spánn
Kristinn Pálsson, Grindavík
Kristófer Acox, Valur
Martin Hermannsson, Valencia, Spánn
Ólafur Ólafsson, Grindavík
Ragnar Örn Bragason, Þór Þ.
Sigtryggur Arnar Björnsson, Tindastóll
Sigvaldi Eggertsson, ÍR
Styrmir Snær Þrastarson, Þór Þ.
Tómas Hilmarsson, Stjarnan
Tryggvi Snær Hlinason, Zaragoza, Spánn
Valur Orri Valsson, Keflavík
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, KR
Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan

Þeir sem gáfu ekki kost á sér að þessu sinni voru:
Breki Gylfason, Haukar, Brynjar Þór Björnsson, KR, Collin Pryor, ÍR Ingvi Þór Guðmundsson, Þór Ak., Matthías Orri Sigurðarson, KR, Pavel Ermolinskij, Valur, Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Haukar og Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Tindastóll.

Craig Pedersen hefur valið 14 manna hóp sem leikur tvo vináttulandsleiki gegn Eistlandi miðvikudag og fimmtudag og ferðast hópurinn út í dag til Eistlands. Nokkrir leikmenn í æfingahópnum eru meiddir og/eða eru hvíldir fyrir ferðina ágúst en eftirtaldir leikmenn skipa liðið í vináttlandsleikjunum tveim:

Nafn, félag · landsleikir
Bjarni Guðmann Jónsson, Háskóli USA · Nýliði
Davíð Arnar Ágústsson, Þór Þorlákshöfn · Nýliði
Elvar Már Friðriksson, Telnet Giants Antwerp, Belgíu · 50
Gunnar Ólafsson, Stjarnan · 24
Hilmar Smári Henningsson, Stjarnan · 4
Kári Jónsson, Basket Girona, Spánn · 16
Kristinn Pálsson, Grindavík · 17
Ólafur Ólafsson, Grindavík · 40
Ragnar Örn Bragason, Þór Þorlákshöfn · Nýliði
Styrmir Snær Þrastarson, Þór Þorlákshöfn · 2
Sigtrygur Arnar Björnsson, Tindastóll · 14
Tómas Þórður Hilmarsson, Stjarnan · 10
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, KR · 9
Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan · 64

Þjálfarar og starfsmenn liðsins:
Craig Pedersen · Þjálfari
Baldur Þór Ragnarsson · Aðstoðarþjálfari
Hjalti Þór Vilhjálmsson · Aðstoðarþjálfari
Valdimar Halldórsson · Sjúkraþjálfari
Hannes S. Jónsson · Fararstjóri
Kristinn Geir Pálsson · Liðsstjóri
Jón Bender · Sóttvarnarfulltrúi

Fréttir
- Auglýsing -