spot_img
HomeFréttir23 ár síðan að Njarðvík missti síðast af úrslitakeppninni

23 ár síðan að Njarðvík missti síðast af úrslitakeppninni

 

Nokkuð áhugaverð yfirferð yfir þátttöku Suðurnesjaliðanna í úrslitakeppninni, Njarðvíkur, Grindavíkur og Keflavíkur var birt í gær hjá Víkurfréttum. Þar er tekið fram að allar götur síðan árið 1994 hafi þessi þrjú lið verið með í úrslitakeppni efstu deildar karla. Árið 1994 missti Njarðvík síðast af lestinni (23 ár), Grindavík var ekki með síðast árið 1992 (25 ár) og Keflavík hefur tekið þátt í öllum úrslitakeppnum síðan árið 1986 (31 ár)

 

Eins og staðan er í Dominos deildinni í dag eiga öll liðin öll möguleika á að missa af lestinni þetta árið. Grindavík er efst liðanna í 4. sæti með 22 stig, Keflavík í 5.-7. sæti með 20 stig og Njarðvík (með leik til góða í kvöld gegn Þór á Akureyri) í 8.-9. sæti með 18 stig.

 

Hérna er staðan í deildinni

Hægt er að lesa frekar um þetta á vef Víkurfrétta hér

Fréttir
- Auglýsing -