spot_img
HomeFréttir20 ára afmælissýning Space Jam í kvöld

20 ára afmælissýning Space Jam í kvöld

 

Bíó Paradís í samstarfi með Karfan.is heldur upp á 20 ára afmæli myndarinnar Space Jam með sýningu í kvöld kl. 20:00. Ljóst er að aðeins er um eina sýningu að ræða og er takmarkaður miðafjöldi í boði, því hvetjum við alla þá sem að ætla sér að koma og sjá þetta þrekvirki körfuboltakvikmyndasögunnar á stóra tjaldinu til þess að tryggja sér miða.

 

Þann 10 nóvember 1996 var kvikmyndin Space Jam frumsýnd, en í myndinni var lifandi leikurum skeytt saman við tölvugerðar persónur Looney Tunes, þar sem að í aðalhlutverki voru Michael Jordan og Kalli Kanína (e. Bugs Bunny).

 

Fyrir utan Jordan í myndinni voru einnig körfuknattleiksleikmennirnir Larry Bird, Charles Barkley, Patrick Ewing, Muggsy Bogues, Larry Johnson, Shawn Bradley, Vlade Divac, Cedric Ceballos, Danny Ainge, A.C. Green, Charles Oakley, Derek Harper, Jeff Malone, Anthony Miller, Horace Grant, Steve Kerr, Luc Longley, Scottie Pippen, Brian Shaw og Bill Wennington svo einhverjir séu nefndir.

 

Hérna er hægt að kaupa miða

 

Hérna er viðburður sýningarinnar á Facebook

 

Stikla myndarinnar:

Fréttir
- Auglýsing -