HomeFréttir2 vikur í stelpubúðir Helenu - Skráning hér

2 vikur í stelpubúðir Helenu – Skráning hér

Stelpubúðir Helenu Sverrisdóttur fara fram helgina 14. til 16. ágúst á Ásvöllum í Hafnarfirði, en nú styttist óðum í að flotta körfuboltastelpur fylli svæðið. Undirbúningur er í fullum gangi, þjálfaraáætlun er að skýrast og treyjur ársins eru tilbúnar.

Dagskráin verður fjölbreytt og spennandi en boðið verður upp á stöðvaþjálfun, drillur, 3×3, spil, keppnir, styrktaræfingar, sundferð, hádegismat og fleira. Eldri hópurinn, sem samanstendur af stelpum fæddum 2016 og fyrr, er með meiri dagskrá og lengri daga, á meðan yngri hópurinn, fæddur 2017 og síðar, er með styttri daga. Yngri leikmönnum stendur þó til boða að vera í eldri hópnum ef þær vilja og treysta sér til.

Verð fyrir eldri hópinn er 19.900 krónur en 14.900 krónur fyrir þær yngri, og er hádegismatur ásamt SB2026 treyju innifalinn í verðinu. Veittur er systrafafsláttur þar sem greitt er 50% fyrir aðra systurina, en ef um þrjár systur er að ræða er sú fyrsta á fullu verði, önnur á hálfu verði og sú þriðja frítt.

Greiðsla þarf að berast í síðasta lagi 5. ágúst til að staðfesta plássið. Nánari dagskrá og upplýsingar verða sendar í tölvupósti þegar nær dregur. Hægt er að skrá sig í gegnum skráningarlink á Facebook-síðu búðanna eða hafa samband með tölvupósti á [email protected] og í síma 778-6822.

Hérna er hægt að skrá sig

Fréttir
- Auglýsing -