spot_img
HomeNeðri deildir2. deild karla2. deild kvenna hefur opnað fyrir skráningu

2. deild kvenna hefur opnað fyrir skráningu

Opnað hefur verið fyrir skráningu í 2. deild kvenna fyrir veturinn 2019-2020. Mótið er utandeild og um það gilda því ekki hefðbundnar félagaskiptareglur.

  • Keppt verður þrisvar sinnum yfir tímabilið, 2.-3. nóvember, 8.-9. febrúar og 17.-18. apríl.
  • Leiktími: 4×8 gangandi klukka, stoppað í vítaskotum.
  • Allar aðrar reglur gilda.
  • Tíu mínútuhæstu leikmenn meistaraflokks að meðaltali eru ólöglegir.
  • Þátttökugjöld eru kr. 35.000 á lið fyrir tímabilið.

Skráning stendur yfir til kl. 12:00 þriðjudaginn 15. október. Skráning þarf að berast í gegnum FIBA Organizer eins og með önnur mót. Skrifstofa KKÍ veitir upplýsingar ef félag vantar aðgang að FIBA Organizer.

Leikstaðir verða ákveðnir að lokinni skráningu. Mótshaldari útvegar dómara í alla leiki.

Fréttir
- Auglýsing -