Íslenska landsliðið er komið á fullt í undirbúningi sínum fyrir lokamót EuroBasket 2017, sem fram fer í Finnlandi í byrjun september. Fyrir nokkrum vikum var 24 manna æfingahópur tilkynntur, en nú hefur sá hópur verið skorinn niður í 19. Þá hafði Jón Axel Guðmundsson dregið sig út úr upphaflega hópinum vegna meiðsla.
Liðið mun leika tvo æfingaleiki gegn Belgíu, þann fyrri í Smáranum á morgun, en þann seinni á Akranesi á laugardaginn.
19 manna hópur Íslands:
Axel Kárason · Tindastóll
Brynjar Þór Björnsson · KR
Elvar Már Friðriksson · Barry University, USA
Haukur Helgi Pálsson · Cholet Basket , Frakklandi
Hlynur Bæringsson · Stjarnan
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík
Jón Arnór Stefánsson · KR
Kári Jónsson · Drexel University, USA
Kristinn Pálsson · Marist University, USA
Kristófer Acox · KR
Logi Gunnarsson · Njarðvík
Martin Hermannsson · Châlon-Reims, Frakklandi
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Pavel Ermolinskij · KR
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Arcos Albacete, Spáni
Sigtryggur Arnar Björnsson · Skallagrímur
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · AE Larissas, Grikklandi
Tryggvi Snær Hlinason · Þór Akureyri
Ægir Þór Steinarsson · San Pablo Inmobiliaria Burgos, Spáni
Leikmenn sem dottið hafa úr æfingahóp:
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Gunnar Ólafsson · St. Francis University, USA
Dagur Kár Jónsson · Grindavík