Serbar leiða 29-47 þegar blásið hefur verið til hálfleiks í Laugardalshöll en þeir voru mun sterkari í öðrum leikhluta og unnu hann 10-23. Þristarnir hafa ekki verið að detta hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik aðeins einn hefur ratað í körfuna í 13 tilraunum.
Staðan var 19-24 fyrir Serbíu eftir fyrsta leikhluta en gestirnir hertu tökin í öðrum leikhluta og unnu hann 10-23 og staðan því 29-47 þegar blásið hefur verið til hálfleiks.
Jón Arnór Stefánsson er ekki tekinn neinum vettlingatökum af serbnesku varnarmönnunum og vonandi vænkast hans hagur í síðari hálfleik en það er óhætt að kasta því fram að Serbarnir hafi fengið nokkuð konunglega meðferð hjá dómurum leiksins fram til þessa.
Hlynur Bæringsson er stigahæstur í íslenska liðinu í hálfleik með 9 stig og 6 fráköst en næstur honum er Jón Arnór Stefánsson með 8 stig. Hjá Serbum er Milan Macvan með 11 stig og 7 fráköst og Milos Tedosic er með 8 stig og 4 fráköst.
Mynd/ [email protected] – Finnur Atli Magnússon í glímunni við Serba í fyrri hálfleik.





