Riðlakeppni EuroBasket 2025 kláraðist nú á fimmtudag og eru 16 lið komin áfram í 16 liða úrslitin.
Útsláttarkeppni EuroBasket rúllar af stað í dag með fjórum leikjum og klárast svo á morgun með fjórum leikjum.
Hér fyrir neðan má sjá viðureignir dagsins, en þær eru allar í beinni útsendingu RÚV.
EuroBasket 2025 – 16 liða úrslit
Tyrkland gegn Svíþjóð (06/09, 10:00)
Þýskaland gegn Portúgal (06/09, 13:15)
Litháen gegn Lettlandi (06/09, 16:30)
Serbía gegn Finnlandi (06/09, 18:45)



