Bónusdeild karla hófst í kvöld með nokkrum leikjum, þar á meðal fengu Valsmenn Stjörnumenn í heimsókn. Bæði lið nokkuð breytt frá síðasta tímabili, þótt það sé vissulega sami kjarni. Væntingarnar fyrir mótið eru mismiklar, sérfræðingar eru flestir sammála að þetta verði langur vetur fyrir Valsmenn á meðan Stjarnan gæti barist um heimavallarétt í fyrstu umferð úrslitakeppni.
Það var engin kani og enginn Kristó með Valsmönnum en virkilega gaman að sjá hinn stórefnilega, 16 ára gamla, Atla Frey fá pláss í byrjunarliðinu, mjög spennandi leikmaður þar á ferð. Einnig var gaman að sjá að Ægir aftur á parketinu eftir erfið meiðsl.
Leikurinn byrjaði svona eins og við var að búast, mikill ærslagangur og heill hellingur af tæknifeilum, jafnræði með liðunum, engin flugeldasýning, en bæði lið með orkuna og leikgleðina með sér, staðan eftir fyrsta leikhluta var 22-22.
Annar leikhluti var síðan copy-paste af þeim fyrsta, bæði lið settu inn unga leikmenn, Valsmenn settu inn tvíburana, Orra og Veigar og Stjarnan setti Jakob Kára, 17 ára, inn á sem átti skínandi góða innkomu. Nánast jafnt á öllum tölum, Valsmenn yfirleitt á undan að skora og þegar líða fór á leikhlutan náðu Valsmenn níu stiga forystu. Stjörnumenn klóruðu í bakkann og staðan í hálfleik var 46-41.
Valsmenn byrjuðu síðan aðeins betur í seinni hálfleik, munurinn varð samt aldrei meira en 10 stig, táningurinn Atli Freyr sýndi hvers vegna Finnur treysti honum til að vera í byrjunarliðinu, þvílíkur þroski hjá jafn ungum manni. Annars var leikhlutinn mjög jafn, Valsmenn héldu sinni forystu og fóru inn í síðasta leikhlutann með stöðuna 69-59.
Það gekk ílla hjá báðum liðum að skora í upphafi 4. leikhluta, heimamönnum gekk þó betur og skoruðu fyrstu 8 stigin í leikhlutanum, þá var gestunum nóg boðið og tóku leikhlé, enda 18 stigum undir. Valsmönnum héldu engin bönd og héldu Stjörnumönnum vel fyrir aftan sig
Hjá Val átti Atli Freyr frábæran leik, með 18 stig og 12fráköst, Lautier var með 18 stig og Bertrone með 17 stig. Það var fátt um fína drætti hjá Stjörnunni, Amandas Urkis var góður, með 21 stig, Hilmar Smári var einnig góður með 19stig, Viktor Jónas var einnig með lífsmarki og setti niður 12stig
Valsmenn spila í annari umferðinni, þann 16. október, þegar þeir fá Íslandsmeistara Grindavík í heimsókn. Stjarnan fær sama dag, nýliðina frá Egilsstöðum, Hött í heimsókn.




