Stephen Curry er í ham þessi dægrin og maðurinn er það sjóðandi heitur að jafnvel færustu sérfræðingar vestanhafs eru farnir að hrista höfuðið. Curry hefur gert 148 stig á 127 mínútum það sem af er leiktíðinni og í nótt þegar Golden State valtaði yfir Memphis Grizzlies var Curry með 30 stig, 3 fráköst, 3 stoðendingar og 3 stolna bolta og leikstjórnandinn já… var líka með eitt varið skot.
Warriors lögðu Memphis 119-69 í leiknum, stærsta tap í sögu Grizzlies í NBA deildinni og næststærsti sigur Warriors í sögu félagsins en sá stærsti kom 1991 með 153-91 sigri á Sacramento Kings.
Eins og sakir standa í dag eru það aðeins Warriors með Curry í broddi fylkingar, Toronto, Detroit og LA Clippers sem eru einu taplausu lið deildarinnar. Okkur þykir sennilegast að hin þrjú síðastnefndu muni tapa leik á undan Warriors. En við fáum fljótt úr því skorið því Warriors og Clippers mætast á aðfararnótt fimmtudags.
Leikir Curry það sem af er tímabili
Warriors 111-95 Pelicans – Curry 40 stig
Houston 92-112 Warriors – Curry 25 stig
Pelicans 120-134 Warriors – Curry 53 stig
Warriors 119-69 Memphis – Curry 30 stig