Ísland mun í dag leika seinni æfingaleik sinn gegn Belgíu. Leikurinn hefst kl. 17:00 og fer fram á Akranesi. Fyrr í vikunni var tilkynnt með það að æfingahópur liðsins hafi verið skorinn niður úr 23 leikmönnum niður í 19, en þeir hafa svo skipt með sér þessum tveimur leikjum.
Þá munu þeir leikmenn sem léku með undir 20 ára liðinu í A deild Evrópumótsins, þeir Tryggvi Snær Hlinasson, Kristinn Pálsson og Kári Jónsson ekki vera með liðinu í þessum æfingaleikjum.
Þeir leikmenn sem spila báða leikina eru Haukur Helgi Pálsson, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson, Hörður Axel Vilhjálmsson, Ægir Þór Steinarsson, Martin Hermannsson, Sigtryggur Arnar Björnsson og Kristófer Acox.
Hópur seinni leiks gegn Belgíu / Laugardaginn 29. Júlí kl. 17:00 á Akranesi:
Axel Kárason
Haukur Helgi Pálsson
Hlynur Bæringsson
Hörður Axel Vilhjálmsson
Kristófer Acox
Jón Arnór Stefánsson
Logi Gunnarsson
Martin Hermannsson
Pavel Ermolinskij
Ragnar Ágúst Nathanaelsson
Sigtryggur Arnar Björnsson
Ægir Þór Steinarsson