Ísland hefur leik í undankeppni EuroBasket 2027 er liðið tekur á móti Serbíu kl. 19:30 í Ólafssal í kvöld, en frítt er á leikinn í boði Bónus.
Á dögunum tilkynnti Pekka Salminen nýr þjálfari liðsins 15 leikmanna hóp þeirra. Aðeins 12 eru á skýrslu í hverjum leik og því þarf að skera hópinn niður um 3 leikmenn fyrir kvöldið.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða 12 leikmenn það verða sem leika fyrir Ísland í kvöld.
Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík – 14
Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur – 14
Danielle Rodriguez – Njarðvík – 4
Diljá Ögn Lárusdóttir – Stjarnan – 10
Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík – 15
Kolbrún María Ármannsdóttir – TK Hannover Luchse, Þýskalandi – 2
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR – 2
Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR (nýliði)
Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík – 32
Sigrún Björg Ólafsdóttir – Haukar – 7
Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar – 10
Þóra Kristrín Jónsdóttir – Haukar – 37
Fyrir utan liðið í kvöld eru Thelma Dís Ágústsdóttir, Þóranna Kika Hodge Carr og Helena Rafnsdóttir.



